KVENNABLAÐIÐ

Fimm UNAÐSLEGAR og SÁRAEINFALDAR leiðir að ristuðu brauði með RICOTTA!

Þeir kunna sitt fag, bandarísku kokkarnir sem fara stórum á Buzzfeed. Því verður seint neitað og þá er ótrúlegt, hvað má gera mikinn veislumat úr nánast engu.  Vissir þú til að mynda að ricottaostur er ekki bara guðdómlegur í matargerðina; sósur og kökur – heldur einnig á ristað brauð? 

screenshot-www.buzzfeed.com 2015-10-08 17-41-24
Lauren Zaser / BuzzFeed

Við hér á ritstjórn erum agndofa af aðdáun yfir því hugarflugi sem bandarísku smáréttakokkarnir búa yfir, en utan þess að kunna lagið á smáréttunum – virðast þeir einnig sérfróðir um hvernig búa á til ricottaost frá grunni og það í örbylgjuofni. Uppskriftina þá má finna HÉR en að neðan má sjá fimm guðdómlegar tillögur að sérstaklega skemmtilegu ristuðu brauði sem inniheldur ekki margar kaloríur en er ægilega freistandi!

#1 – Ricottabrauð með ferskum jarðarberjum, hráhunangi og svörtum piparkornum: 

Lindsay Hunt / Alice Mongkongllite / BuzzFeed

 Fersk jarðarber eru æðisgengin með ricottaosti. Prófaðu að smyrja ricottaosti á ristaða brauðsneið, skera niður nokkur jarðarber, láttu 1 msk af hráhunangi drjúpa yfir sneiðarnar og sáldraðu grófmöluðum, svörtum pipar yfir allt.

 

#2 – Ricottabrauð með bananasneiðum og Nutella: 

Lindsay Hunt / Alice Mongkongllite / BuzzFeed

– Almáttugur! Sneiddu lítinn banana niður, smyrðu ristaða brauðsneið með ricottaosti og láttu bananasneiðarnar yfir. Með 2 msk af Nutella er himnesk brauðsneið fædd!

 

#3 – Ricottabrauð með maís, skalottulauk og ferskum jalapeno: 

Lindsay Hunt / Alice Mongkongllite / BuzzFeed
Lindsay Hunt / Alice Mongkongllite / BuzzFeed

– Þessi brauðsneið er ekki fyrir þá veiklyndu. Smyrðu ricottaosti ofan á ristaða brauðsneið; hrærðu því næst saman 3 msk af maís, 1 litlum, fínt söxuðum skalottulauk, 1 msk af fínsöxuðum jalapeno og 1 msk af ólívuolíu. Kryddaðu til með salti og pipar og sáldraðu ofan á ristaða ricottaosta-brauðsneiðina!

 

#4 – Ricottabrauð með grænu pestó, svörtum pipar og smátt skornum tómat: 

Lindsay Hunt / Alice Mongkongllite / BuzzFeed
Lindsay Hunt / Alice Mongkongllite / BuzzFeed

Smyrðu ricottaostinum ofan á ristaða brauðsneiðina, smyrðu því næst 2 msk af grænu pestó ofan á ricottaostinn og saxaðu niður einn lítinn tómat, sem toppar brauðsneiðina. Kryddaðu til með salti og pipar og borðaðu í einum grænum!

#5 – Ricottabrauð með spældu eggi og rauðum piparflögum:  

Lindsay Hunt / Alice Mongkongllite / BuzzFeed
Lindsay Hunt / Alice Mongkongllite / BuzzFeed

Hitaðu tvær msk af ólívuolíu á lítilli pönnu við meðalhita. Spældu nú eitt meðalstórt egg á pönnunni og kryddaðu til með salti og pipar, eða allt þar til rauðan er orðin mjúk og rennileg – í u.þ.b 3 – 4 mínútur.

Smyrðu þykku lagi af ricottaosti á ristaða brauðsneið í millitíðinni. Settu því næst spælda eggið ofan á ristuðu ricottaosta-brauðsneiðina og sáldraðu rauðum, möluðum piparflögum ofan á eggið. Kryddaðu til með salti og pipar eftir smekk og snæddu brauðsneiðina umsvifalaust!

Við ELSKUM BuzzFeed Food og bandaríska smáréttakokka! 

 

Ricotta Toasts http://bzfd.it/1KOyCKe

Posted by BuzzFeed Food on Monday, September 28, 2015

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!