KVENNABLAÐIÐ

SJÚKLEGA góð og SÁRAEINFÖLD súkkulaði-ostakaka fyrir UPPTEKNA!

Hér er komin lúxusuppskrift fyrir lata kokka; nefnilega guðdómlegar ostaköku-brownies með himneskum vanillukeim. Þetta er svo auðvelt að það er ekki hægt að klúðra uppskriftinni. BARA EKKI HÆGT! Þetta er skotheld uppskrift fyrir alla í tímaþröng, sem langar í sætindi! 

UPPSKRIFT OG AÐFERÐ:

#1 – Hráefni!

Byrjaðu á því að næla í tilbúið Brownies mix í næstu matvöruverslun. Hrærðu blönduna til eins og segir á pakkanum. Þeyttu 230 grömm af hreinum rjómaosti með handþeytara, bættu því næst 55 grömmum (¼ bolla) af strásykri við rjómaostinn og þeyttu saman þar til blandan er orðin mjúk og áferðarfalleg. Bættu að lokum einu vænu eggi í þeyttan rjómaostinn og ½ tsk af vanilluþykkni.

#2 – Bökunarleiðbeiningar!

Dreifðu brownies-blöndunni í lítið og ferkantað kökuform. Dreifðu þeyttum rjómaostinum ofan á með skeið og blandaðu vel saman að lokum (sjá myndband) með bakhliðinni á skeiðinni. Ekki hræra of mikið! Stingið inn í ofn og bakið við 190 gráður í 35 – 40 mínútur, eða þar til rjómaosturinn verður gullinbrúnn.

Berið fram, lifið fyrir augnablikið og njótið í botn!  

Easy Cheesecake Fudge Brownies

Posted by Tasty on Monday, September 14, 2015

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!