KVENNABLAÐIÐ

Rótsterkur chili- og mangóboost með engifer, kanel og vanillukeim

Þessi er heimalagaður; á uppruna sinn að rekja til galdraeldhúss ritstjóra og er þrælprófaður í bak og fyrir. Stundum er einfaldlega gaman að láta hráefnin í ávaxtakörfunni og ísskápnum ráða ferðinni og ekki er verra ef ákveðið hugrekki fylgir; þorið til að bæta örlitlu kryddi í þann græna á mánudagsmorgni.

Hressilega kryddaður og suðrænn, íðilgrænn ávaxtaboost sem gæðir haustið líflegum blæ – en uppskriftin hér að neðan dugar í tvö sæmilega stór, upphá glös. Ef ætlunin er að laga bara boost fyrir einn – má með góðu móti helminga uppskriftina, sem hentar annars vel fyrir tvo í morgunsárið.

Coconut-Chili-Pepper

U P P S K R I F T:

1 stórt, vel þroskað mangó (gullinleitt að lit, smátt skorið og afhýtt)

1 bolli grænkál (spínat, ruccula, grænt kál að eigin vali)

1 bolli ananasbitar

1 nýkreistur limeávöxtur – aldinkjöt og limesafi

2 bollar kókosvatn / kókosmjólk

5 cm bútur ferskrifin engiferrót

Hnífsoddur af kanel

Hnífsoddur af vanillufræjum

Hnífsoddur af fínmöluðum chili pipar

mango

L E I Ð B E I N I N G A R:

Byrjið á því að setja kókosvatn / kókosmjólk, spínat og nýkreist lime-aldinkjöt og lime-safann í blandarann. Hrærið vel saman og stöðvið svo blandarann; bætið mangó, ananas, fínrifnum, ferskum engifer og kanel, vanillubaunum og chili pipar í blandarann. Hrærið vel saman. Ef drykkurinn er of þéttur í sér, má þynna út blönduna með vatni.

Kryddið rífur vel í hálsinn en sefar kvef og hósta  – farið með gát þegar magnið er ákvarðað.

Þessi uppskrift hentar fyrir tvo – en helminga má uppskriftina fyrir einn.

spinach-9ATH: Mjög gott er að frysta spínat / grænkál / grænt kál að eigin vali í litlum frystipokum og smella í græna drykkinn að morgni. Þannig inniheldur 1 bolli af þéttpökkuðu, frosnu spínati u.þ.b. sexfalt magn af Magnesíum ef tekið er mið af fersku spínati. Hafið þetta í huga, ef ætlunin er að auka á bætiefnainntökuna.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!