KVENNABLAÐIÐ

Krúttlegir kettlingar slást um pela og sprengja krúttskalann – sjáðu þann til vinstri!

Ó, þeir eru svo sætir! Stundum geta læður ekki brjóstfætt eigin kettlinga. Í einhverjum tilfellum hafnar læðan sínum eigin afkvæmum, öðrum stundum yfirgefur læðan einfaldlega svæðið. Þá er góð ráð dýr og ekki seinna vænna en að seðja svanga munna.

Hverju sem því líður er tríóið hér að neðan; systkinin Rocky, Sweat Pea og Johnny – eða Steinn, Sætabaun og Jón litli eins og þessir litlu loðboltar myndu útleggjast á íslensku – staðráðin í að láta ekki einn dropa fara til spillis. Þó þau séu lifandis löngu orðin fullorðin dýr í dag og borði úr skál eins og ferfætlingum sæmir – er eitthvað svo sætt að sjá þau berjast við risavaxið snuðið – sjáið hvað sá sem er lengst til vinstri gerir þegar pelasnuðið hrapar úr loppunum á honum!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!