KVENNABLAÐIÐ

Trump setur hnefann í borðið: „Þetta er hárið á mér! Togaðu bara í það!“

Mikið mæðir á Donald Trump þessa dagana. Ekki einungis stendur maðurinn í ströngu varðandi fyrirhugað forsetaframboð, heldur veit hann vart hvaðan á sig stendur veðrið lengur varðandi eigið hár.

Svo virðist sem Donald sé ekki par sáttur við þær dylgjur að hárið sé ekki ekta og kallaði þannig unga konu upp á svið fyrir skemmstu þar sem hann var staddur vegna ræðuhalda, beygði sig fram og bað konuna að ganga úr skugga um hvort hárið væri ekki örugglega tryggt á höfðinu.

„Þetta er hárið á mér!“ sagði Donald með þjósti og bað konuna að toga í hárið. „Hérna, talaðu svo í hljóðnemann! Segðu þeim að hárið á mér sé alvöru! En ekki toga of fast í það, ég nota hársprey, í Guðs bænum!“ 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!