KVENNABLAÐIÐ

Hvernig verður þú betri í rúminu?

Hvernig væri að verða betri í rúminu? Læra hvað þarf til til að njóta þín betur og fá fullnægingu í samförum? Það fæðist enginn með þetta alveg á hreinu og æfingin skapar meistarann í þessu eins og öðru en hér koma nokkrar ráðleggingar sem þú getur tileinkað þér.

1. Þekktu líkama þinn
Vertu virk, farðu í ræktina, jóga, sund og sjáðu hvað hann getur gert. Eitt það mikilvægasta sem konur gera er að hreyfa sig eitthvað á hverjum degi. Það þarf ekki að taka langan tíma. Kynlíf er áreynslu “íþrótt” og því þarf að vera í formi og hafa úthald.

Það að þekkja líkama þinn þýðir líka að við sættumst við appelsínuhúðina, örið á maganum, slitförin og allt það og látum ekkert trufla okkur. Svo er líka nauðsynlegt að þekkja píkuna sína. Strjúka henni og vita hvað örvar hana og hvernig þú færð fullnægingu. Það nýtir þú svo í rúminu með elskhuganum.

2. Lærðu að sleppa
Lífið snýst ekki um að halda í hluti sem ganga ekki upp fyrir okkur eða gera okkur ekki hamingjusama. Lífið snýst um hreyfingu og að fara með straumnum. Finna okkar eigin styrk og vera ekki háður neinu. Við getum allt og mótlæti styrkir okkur. En þegar kemur að því að stunda kynlíf þá er málið að njóta stundarinnar og láta allt flakka. Ekki hugsa um neitt annað en stund og stað. Þá kemur fullnægingin svo miklu auðveldar. Þetta snýst ekki um hversu góður bólfélaginn er, þetta snýst rosa mikið um hausinn á okkur sjálfum. Slökun og að tæma hugann er algjört lykilatriði í því að verða betri elskhugi.

3. Losaðu þig við alla skömm
Hvað þú segir og gerir í rúminu er þitt mál. Það er ekkert til að skammast sín fyrir. Ef þig langar að tala dónalega, deila fantasíum eða prófa BDSM þá er það í góðu lagi. Ekki afsaka þig og njóttu bara.

1504553_256572087836166_1048569502_n

4. Ánægjan er ferðalag en ekki áfangastaður
Við erum alltof uppteknar af fullnægingunni. Hvað með að njóta ferðarinnar? Snertu hann, sleiktu hann, nuddaðu hann og láttu hann gæla við þig á móti. Lærðu að þekkja hvað þér finnst gott að gera í rúminu og biddu um það og veittu. Það er það sem málið snýst um.

5. Notaðu leikföng
Nýjungar og að brydda upp á einhverju öðruvísi og skemmtilegu gerir þig meira æsandi. Komdu á óvart og nuddaðu hann upp úr nuddolíu, settu á þig og hann silkimjúkt sleipiefni, bittu fyrir augun á honum, handjárnaðu hann við rúmið, notaðu kítlu eða titrara, eitthvað!

Margar konur tala um að þegar þær fóru að nota egg í samförum þá breyttist allt. Þá fóru þær að fá fullnægingu. Það er vegna þess að flestar erum við þannig gerðar að við þurfum örvun á sníp í samförum til að fá það. Því ekki að leika saman með dót? Hvað með að prófa G-bletts titrara í samförum? Það er líka skemmtilegt og margar konur upplifa einstakan unað.

6. Fáðu fleiri en eina fullnægingu
Ein er ekki nóg. Fáðu raðfullnægingu eða fleiri en eina.
Hafðu úthald.

Þetta er nefnilega lykillinn. Ef þú nýtur kynlífsins þá langar þig í meira. Þetta er alveg eins og með góðan mat. Ef hann er góður þá langar þig í meira og aftur og aftur.

Brátt verður þú óstjórnlega góð í rúminu og þú upplifir þig kynþokkafyllri og ánægðari en nokkru sinni fyrr.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!