KVENNABLAÐIÐ

Betty Crocker súkkulaðivöfflur! – #afhverjuvarégekkibúinaðfattaþettafyrr

Við elskum Betty Crocker kökumix, það gerir bara lífið einfaldara og hún BETTY klikkar ekki. En vissirðu að það er hægt að nota deigið í vöfflujárnið og búa til súkkulaðivöfflur? Þetta er svo frábærlega sniðugt og hættulega gott. Best með góðum vanilluís eða rjóma og engin þörf á meiri sykri því deigið er sætt fyrir. 

1. Búa deigið til eins og stendur á pakkanum. Hita vöfflujárnið og þegar það er heitt hellirðu því magni sem þú ert vön að nota þegar þú gerir vöfflur.

Cake-Mix-Waffles-sq2

2. Leyfðu þeim að bakast í gegn

Cake-Mix-Waffles-sq1

3. Skelltu einni ískúlu ofaná nýbakaða vöffluna

Cake-Mix-Waffles-sq4

Njóttu! Og deildu svo snilldinni til vina sem elska súkkulaði!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!