KVENNABLAÐIÐ

Við söknum þín, Robin

Robin Williams lést fyrir skömmu langt fyrir aldur fram þegar hann féll fyrir eigin hendi á heimili sínu í Kaliforníu. Mikið hefur verið fjallað um andlát leikarans í erlendum fjölmiðlum og verður hans sárt saknað. En þökk sé netinu þá lifa margar frábærar minningar með okkur aðdáendum hans og við getum yljað okkur við þá staðreynd að fjórar nýjar bíómyndir með honum eiga enn eftir að koma út og það strax í vetur.

Hér er viðtal við Robin sem er óvenjulegt fyrir þær sakir að það er einn og hálfur klukkutími þar sem Robin talar opinskátt um líf sitt innan og utan hvíta tjaldsins.

Blessuð sé minning þessa stórkostlega listamanns.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!