KVENNABLAÐIÐ

Hugrökk stúlka fær síðustu ósk sína uppfyllta

14 ára stúlka Emmie Jade Bennet fékk ósk sína uppfyllta um að verða Youtube stjarna þar sem hún „mæmar“ lag Ed Sheeran „Drunk.“
Emmie greindist með krabbamein í öxl þegar hún axlarbrotnaði. Æxli á stærð við egg fannst í öxl hennar og hún fór í ótal meðferðir en tapaði baráttunni í júlí sl.

Emmie gerði þetta þriggja mínútna Youtube myndband og biður fólk um að heita á og styrkja  Bluebell Wood Hospital í Sheffield sem hjálpaði henni að gera síðustu daga hennar á lífi sérstaka.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!