KVENNABLAÐIÐ

Sá allra kynþokkafyllsti

People magazine hefur valið Ástralann Chris Hemsworth kynþokkafyllsta mann á lífi 2014 eða „Sexiest Man Alive“ of 2014.
Hemsworth er þekktur fyrir hlutverk sitt sem vöðvabúntið Thorwho en hann lék einnig Formúlu 1 kappaksturshetjuna James Hunt í mynd Ron Howards „Rush“ og „Star Trek“ vélmennið.

Chris  Hemsworth er 31 árs og giftur „Fast and Furious 6“ leikkonunni Elsu Pataky og saman eiga þau þrjú börn.
Þegar Hemsworth var spurður hverjum hann vildi þakka þá svaraði hann, „foreldrum mínum fyrir að setja mig saman.“ Chris ætlar að nýta næstu vikur vel og minna konu sína reglulega á að hann beri nú þennan titil og það hljóti að afsaka hann frá uppvaski og bleijuskiptum. Hann sé einfaldlega yfir það hafinn og fólkið hafi valið.

BBeBseI

 

Hemsworth kemst í félagsskap manna eins og Bradley Cooper, Ryan Reynolds, Brad Pitt, George Clooney, Patrick Swayze, Sean Connery, Ben Affleck, Channing Tatum og Adam Levine. Mel Gibson, annar Ástrali var sá fyrst til að hljóta heiðurinn árið 1985.

Yngri bróðir Chris er Liam sem þekktur er fyrir leik sinn í The Hunger Games og fyrir að vera fyrrverandi kærasti Miley Cyrus.

Sykur.is óskar Chris Hemsworth til hamingju með titilinn.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!