KVENNABLAÐIÐ

Ariana Grande fær skrýtnar gjafir frá æstum aðdáanda

Poppstirnið Ariana Grande á aðdáendur um gjörvallan heim og eru sumir þeirra klikkaðari en aðrir. Einn er t.d. sérstaklega gjafmildur og það er hinn 29 ára gamli Tim Normandin frá Massachusetts. Að undanförnu hefur hann t.d. sent henni..

  • Grasker sem er 21 kg að þyngd
  • Átta ilmkerti frá Yankee Candle
  • Kisu-og hundadagatöl
  • Speglasett úr K-mart
  • 200$ ökklaband frá Kay Kewelers
  • Stein úr hvítu fjöllunum í New Hampshire

Einhverra hluta vegna er Grande síður en svo uppnumin yfir gjafaflóðinu. Hún lét plötufyrirtækið sitt hafa samband við lögreglu sem gerði manninum að hætta að senda henni gjafir, ellegar ætti hann yfir höfði sér kæru fyrir áreiti.

ariana-grande-seventeen-september-2014-magazine-07292014-01-400x470
Eflaust sér Ariana sjálf um kertakaupin fyrir heimilið sitt

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!