KVENNABLAÐIÐ

18 feminískar tilvitnanir

EleanorRoosevelt

„Kona er eins og tepoki – Þú veist ekki hversu sterk hún er fyrr en þú setur hana í heitt vatn“ – Eleanor Roosevelt, fyrrverandi  pólitíkus og forsetafrú Bandaríkjanna

diane-von-furstenberg-vem-ao-Brasil-2__Lindizzima

„Ég vildi alltaf vera hættuleg kona (femme fatale). Meira að segja þegar ég var lítil stelpa langaði mig ekki mikið að vera stelpa. Ég vildi vera kona.“ – Diane Von Furstenberg

madonna-

„Ég er hörð, ég er metnaðargjörn og ég veit nákvæmlega hvað ég vil. Ef það gerir mig að tík þá er það allt í lagi.“ – Madonna

„Ég elska þegar ég sé unga stúlku taka lífið hreðjatökum. Lífið er tík. Þú verður að fara út og sparka í rassa.“ – Maya Angelou

„Femínismi snýst ekki um að gera konur sterkar. Konur eru nú þegar sterkar. Femínismi snýst um að breyta því hvernig heimurinn metur þann styrk“ – G.D. Anderson

gs

„Konur eru alltaf að segja að þær geti gert allt sem karlmenn geta en karlmenn ættu að vera að sannfæra sig um að þeir geti allt sem konur geta.“ – Gloria Steinem

Malala Yousafzai

„Ég hef upp raust mína – ekki svo ég geti öskrað, heldur svo raddir þeirra raddlausu geti líka heyrst … Við náum ekki árangri þegar helmingi okkar er haldið niðri“ – Malala Yousafzai

bette davis 8

„Þegar maður gefur álit sitt er hann karlmaður. Þegar kona gefur álit sitt er hún tík“ – Bette Davis

„Þú þarft ekki að vera falleg. Þú skuldar engum fegurð. Ekki kærasta þínum, eiginmanni eða lífsfélaga, ekki samstarfsfólki þínu og sérstaklega ekki handahófskenndum mönnum á götum úti. Þú skuldar hana ekki móður þinni, börnunum þínum eða hinu siðmenntaða samfélagi yfir höfuð. Fegurð er ekki gjald sem þú greiðir fyrir að leggja í stæði merkt konu.“ – Erin McKean

„Auðvitað hef ég ekki áhyggjur af því að ógna karlmönnum. Sá karlmaður sem er ógnað af mér er akkurat sú týpa af karlmanni sem ég hef engan áhuga á“ – Chimamanda Ngozi Adichie

„Mér líður ekki eins og minni konu fyrir vikið. Ég finn styrk í því að ég tók stóra ákvörðun sem á engan hátt dregur úr kvenleika mínum.“ – Angelina Jolie um brjóstnámsaðgerð sem hún fór í.

„Það tók mig langan tíma að læra að tjá mig og nú þegar ég hef gert það er ekki séns að ég þagni.“ – Madeleine Albright

„Ég hef aldrei hitt konu sem ekki er sterk en stundum hleypa þær styrknum ekki út fyrr en eitthvað hræðilegt gerist. Þá allt í einu kemur þessi styrkur. Ég segi; hleyptu styrknum út áður en harmleikurinn kemur.“ – Diane Von Furstenberg

truth

„Konur hafa alltaf verið þær sterku í þessum heimi. Karlmenn leitast eftir stað til að hvíla höfuð sitt á hjá konum. Þeir þrá að komast í faðm móðurinnar sem hélt þeim sem ungbörnum.“ – Coco Chanel

Hillary Clinton

„Ég vil meina að réttindi kvenna og stúlkna sé það verkefni sem 21 öldin skildi eftir óklárað.” – Hillary Clinton

Beyonce1-Instagram-013013-jpg_183759

„Við þurfum að endurhugsa hvernig við lítum á okkur sjálfar. Við konur þurfum að standa upp og taka stjórnina.“ – Beyoncé

„Hvers vegna hefur orðið femínisti öðlast svo neikvæða merkingu? Það er ekki orðið sem skiptir öllu máli, það er hugmyndin og hugsunin á bakvið það.“ – Emma Watson

„Hugmyndin um að vera femínisti. Svo margar konur hafa komist að þeirri niðurstöðu að femínismi snúist um að vera andsnúin karlmönnum og að ófær um að tengjast hinu kyninu. En femínismi snýst um jafnrétti og mannréttindi. Það er mikilvægur partur af sjálfsmynd minni.“ – Lena Dunham

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!