KVENNABLAÐIÐ

Þessi mynd af afa hefur virkilega komið við hjartað í fólki á netinu í dag

Elsku kallinn…maður fær bara tár í augun. Afi eða „Papaw“ eins og barnabarnið hans Kelsey Harmon kallar hann tvítaði mynd sem hefur farið út um allan heim í dag. Hún útskýrir:

dinner with papaw tonight…❤️ he made 12 burgers for all 6 grandkids and I’m the only one who showed. ? love him

Sem myndi útleggjast á íslensku að hún borðaði kvöldmat með honum og hann hafði búið til 12 hamborgara fyrir öll sex barnabörnin en hún var sú eina sem mætti. Papaw hafði meira að segja búið til heimagerðan ís, sem var uppáhald allra barnanna þegar þau voru lítil.

 

papa1

 

Myndin hefur vakið upp sterk viðbrögð fólks út um allan heim:

pa1

pa2

pa3

pa4

Einnig hefur myndin hvatt fólk til að heimsækja fjölskylduna sína, fólkið sitt! Við vitum ekkert hvenær síðasta máltíðin, síðasta samverustundin á sér stað.

Fólk lét líka í ljós reiði gagnvart hinum barnabörnunum fimm og bróðir Kelsey brást strax við:

papa

Papaw skilur ekkert í athyglinni sem hann hefur fengið en vonar að koma einhverju góðu til leiðar, svo sem að fólk hugi meira að þeim sem það þykir vænt um.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!