KVENNABLAÐIÐ

Amanda Bynes býr nú á áfangaheimili eftir fall

Leikkonan Amanda Bynes (33) hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarin ár vegna fíknivanda og slæmrar andlegrar heislu. Í dag býr stjarnan á áfangaheimili fyrir edrú fólk.

Auglýsing

„Hún hætti í meðferð í júní og er nú á áfangaheimili. Það er í raun einn dagur í einu, bókstaflega fyrir hana,“ segir heimildarmaður í viðtali við Us Weekly.

Vinir stjörnunnar hafa áhyggjur af henni og segja að henni „líði ekki vel“ og fjölskylda og læknar hafi í raun neytt hana á áfangaheimilið.

Amanda féll í janúar og fór í meðferð í Los Angeles. Hún ætlaði að reyna endurkomu í Hollywood, en það var „allt, allt of snemmt.“

Auglýsing

Í júní póstaði Amanda svo mynd af útskriftarskírteininu sínu úr meðferð.

Amanda er eftir á með greiðslur vegna meðferða og hefur verið ákærð af meðferðarstöðinni Creative Care Inc., en hún skuldar sem samsvarar um 300.000 ISK.

Áður en Amanda féll hafði hún verið edrú í þrjú ár, en neyslan hafði verið stöðug frá unglingsaldri. Þrátt fyrir að hún sé í meðferðum enn er hún ekki á góðum stað.

Ekki er vitað hvenær hún útskrifast af áfangaheimilinu.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!