KVENNABLAÐIÐ

Umboðsmaður barna segir kennara ekki mega taka síma af börnum í skólanum

Börn njóta eignarréttar eins og allir aðrir og nær það yfir símtæki sem þau eiga. Þetta segir Umboðsmaður barna á heimasíðu sinni. Margir foreldrar hafa þurft að sækja síma barnanna sinna í skólann eða börnin eiga að sækja símann á skrifstofuna eftir skóla ef þau hafa ekki farið eftir reglum.

Spurningin hlýtur einnig að vera sú – hver ber ábyrgð á því ef síminn týnist eða honum er stolið meðan hann er í umsjá skólans?

Ekki er í lagi að taka síma af nemendum, samkvæmt umboðsmanni barna. Skóli má setja reglur um símana sem nemendur fari eftir, en ekki má taka síma af barni nema það sé nauðsynlegt til að vernda aðra.

Auglýsing

Ef það stendur til dæmis í skólareglunum að notkun síma er takmörkuð eða bönnuð á meðan kennslustund stendur og því lýst hverjar afleiðingarnar geta verið ef það er brotið þá er kennara heimilt að bregðast við í samræmi við það. Eins og áður segir verður kennarinn þó alltaf að gæta meðalhófs. Eðlilegt er að fyrsta skrefið væri að kennarinn mundi biðja nemandann um að setja símann niður og gefa honum viðvörun. Ef nemandinn tekur aftur upp símann eftir að hafa fengið viðvörun þá má kennarinn til dæmis bregðast með því að biðja nemandann um að afhenda sér símann þar sem hann er að valda truflun. Kennarinn hefur hins vegar ekki heimild til að taka símann af nemanda gegn vilja nemandans eða með valdi, enda önnur og vægari úrræði sem koma til greina. Ef nemandi fer ekki eftir fyrirmælum kennarans gæti kennarinn til dæmis vísað nemanda úr kennslustund eða sent hann til skólastjóra.

Auglýsing

Þegar um er að ræða hegðun sem getur valdið öðrum skaða eða eignatjóni getur kennari eða starfsfólk skólans þó brugðist við á grundvelli neyðarréttar, til dæmis með því að taka síma eða aðrar eignir af nemendum. Dæmi um slíkt væri ef nemandi væri að nota síma í kennslustund til þess að taka upp myndband eða myndir af einhverjum til að gera grín að eða niðurlægja á einhvern hátt eða sýna myndir eða annað efni í símanum sem getur talist meiðandi.

Ef kennari eða annar starfsmaður skóla telur nauðsynlegt að taka síma af nemanda á grundvelli neyðarréttar þá er nauðsynlegt að símans sé vel gætt og hann geymdur á stað þar sem aðrir nemendur geta ekki nálgast hann til að tryggja friðhelgi nemandans sem á símann. Í þeim tilvikum ber skólanum líka að skila eignunum til baka eins fljótt og hægt er. Í því samhengi er rétt að taka fram að umboðsmaður barna telur ekki rétt að gera kröfu um að foreldrar sæki eignir nemanda, enda eiga börn sjálfstæðan eignarétt. Ef brot nemanda er alvarlegt eða ítrekað getur skóli hins vegar ákveðið að kalla foreldra á fund til þess að ræða hegðun nemandans og hafa samráð við þá um hvernig best er að stuðla að bættri hegðun.

Um málið má betur lesa á heimasíðu Umboðsmanns barna

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!