KVENNABLAÐIÐ

Skildi dóttur sína eftir eina í heila viku til að deyja á þriðja afmælisdegi hennar

„Djöfulleg” móðir skildi þriggja ára dóttur sína eftir eina heima til að deyja án matar eða vatns, en hún fór sjálf að „djamma” í heila viku.

Maria Plenkina (21) fór frá dóttur sinni Kristinu á þriðja afmælisdaginn hennar, læsti dyrum og meira að segja skrúfaði fyrir vatnið þannig aumingja barnið gat ekki fengið sér að drekka.

Auglýsing

þriggja in

Amma Kristinu, Irina (47)  fann barnabarnið sitt en hún hafði keypt handa henni afmælisgjöf. Irina hringdi samstundis á lögreglu og sjúkrabíl en stúlkan var úrskurðuð látin.

Amman segir að hún hafi verið í daglegum samskiptum við móðurina, Mariu, og hún hafi alltaf sagt að hún og Kristina væru „góðar.”
Raunveruleikinn var öllu ógeðfelldari. Maria hafði skilið litlu stúlkuna eftir til að deyja í bænum Kirov í Rússlandi, samkvæmt rannsóknarlögreglunni.

þriggja4

Móðirin er nú í gæsluvarðhaldi í tvo mánuði og er málið til rannsóknar en hún mun að öllum líkindum verða ákærð fyrir morð á barni, notandi öfgakennt ofbeldi.

Auglýsing
Maria
Maria

Talskona lögreglunnar segir: „Móðirin segir að hún hafi vísvitandi læst hurðum íbúðarinnar og farið. Hún sagðist vera að „hafa gaman með vinum sínum.”

þriggja8

Maria var fjarverandi frá 13. febrúar til 20. febrúar. Er málið rannsakað sem morð.

Hún grætur ekki einu sinni, sýnir engan söknuð eða eftirsjá. Hún segir bara: „Já, ég fór, skrúfaði fyrir vatnið og skildi barnið eftir án matar og vatns.

Sést Maria á myndbandi í búri fyrir rússneskum dómi þar sem hún talar rólega, hvíslar næstum en brotnar aldrei niður.

þriggja55

Irina, amman, segist hafa tekið barnið ef hana hefði grunað eitthvað misjafnt: „Hún sagði mér bara alltaf að allt væri í lagi. Hún laug að öllum. Ég hefði aldrei trúað því að hún myndi gera eitthvað svona. Ef ég hefði séð eitthvað hefði ég tekið stúlkuna að mér. Það voru aldrei nein merki um ofbeldi. Hún er leikkona af guðs náð…ef þú getur blekkt alla svona rosalega. Ég hefði aldrei trúað þessu.”

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!