KVENNABLAÐIÐ

Er þetta gamli bolurinn þinn? Frábært framtak til að minnka plastsóun!

Viðskiptavinir Krónunnar hafa gefið mörg tonn af fatnaði í fatagáma Hjálpræðishersins, sem eru staðsettir fyrir utan flestar verslanir Krónunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fatnaðurinn hefur bæði verið endurnýttur hérlendis og hefur verið sendur erlendis til frekari endurnýtingar.

Auglýsing

Meðal verkefna hérlendis er verkefnið „Töskur með tilgang“ en vikulega hittast konur úr hópi innflytjenda, flóttafólks og hælisleitenda til að sauma saman fjölnota innkaupatöskur og grænmetispoka í húsnæði Hjálpræðishersins í Mjódd auk þess sem þær borða saman hádegismat.

Töskurnar eru margs konar, eins og búast mátti við! Hver taska er einstök
Töskurnar eru margs konar, eins og búast mátti við! Hver taska er einstök
Auglýsing

Krónan keypti 700 innkaupatöskur og býður nú viðskiptavinum, í verslunum á Granda og í Nóatúni 17, sem gleyma fjölnotainnkaupapoka að fá töskurnar lánaðar með heim.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!