KVENNABLAÐIÐ

Hvaða fæðutegundir innihalda nikkel?

Ýmislegt bendir til að nikkel í fæðu geti haft þýðingu fyrir þá einstaklinga sem hafa snertiofnæmi fyrir nikkel.

Margir telja að sé mikið nikkel í fæðunni sem neytt er geti handarexem versnað, sérstaklega sú tegund þar sem klæjandi vökvafylltar blöðrum eru í húðinni.

Þeir sem hafa slæmt exem og hafa nikkelofnæmi geta reynt að forðast vissar fæðutegundir í 1-3 mánuði og kannað hvort exemið minnkar.

Auglýsing

Fæða sem inniheldur mikið nikkel:
Skelfiskur td. rækja, krabbi og kræklingur
Baunaspírur, alfalfa spírur
Baunir (hvítar, brúnar, grænar)
Blaðlaukur
Bókhveiti
Döðlur
Garðkál, fóðurmergkál
Gráfíkjur
Gróf kornbrauð, heilhveitibrauð, fjölkornabrauð
Gulertur, matbaunir,
Haframjöl
Heilhveitikex
Hirsi
Hnetur, heslihnetur, salthnetur
Hrísgrjón með hýði
Hveitihýði og annað hýði og trefjaefni þar með talið morgunverðarkorn, hýðiskex, trefjatöflur.
Hörfræ, hörfræjarolía
Klíð, kornhýði
Linsubaunir
Múslí og önnur slík morgunverðarvara
Möndlur
Rúghýði
Salat, salatblöð
Sesamfræ
Soya Baunir
Soyja prótein duft (notað í sósur, blandað sumum unnum kjötvörum, í sumum súpum, í kjötkrafti)
Sveskjur
Sólblómafræ
SpínatAnanas
Hindber
Lakkrís
Lyftiduft (í miklum mæli)
Marsipan
Súkkulaði
Kakó
Sælgæti sem inniheldur súkkulaði, marsipan, hnetur, lakkrís.

Auglýsing

Fjölvítamín sem innihalda nikkel

Fæða sem inniheldur lítið nikkel:
Alifuglar
Allar tegundir kjöts
Egg
Fiskur
Jógurt, án bragðefna
Mjólk
Ostur
Smjör
Hrísgrjón (hýðislaus, í hófi)
Hveiti
Hvít brauð (í hófi)
Kornflex
Kökur og kex sem ekki innihalda hnetur, möndlur, kókó eða súkkulaði
Maís, maísmjöl, maíssterkja
Makkarónur
Rúgbrauð (í hófi)
Spaghettí

Aspargus
Bananar (í hófi)
Blómkál
Broccoli
Dill
Eggaldin
Ferskjur
Gúrka
Hvítkál
Hvítlaukur (í hófi)
Kartöflur
Kínakál
Paprika
Perur
Rababari
Rófur, rauðrófur
Rósakál
Rúsínur
Steinselja
Sveppir

Öll ber nema Hindber

Áfengir drykkir (eimaðir drykkir)
Gosdrykkir
Kaffi (ekki sterkt og í hófi)
Te ( ekki sterkt og í hófi)

Ger
Smjörlíki

Ef exemið hefur lagast á þessum 1-3 mánuðum þá er rétt að halda sig við þessar leiðbeiningar, en þó má slaka aðeins á.

Reynið þó að forðast allan mat sem inniheldur mikið nikkel þegar borðað er heima.

Reynið þó alltaf að forðast þær matartegundir sem innihalda sérlega mikið nikkel svo sem: klíð, hafra, bókhveiti, soja, baunabelgi, súkkulaði, kókó, hnetur og lakkrís.

Sumar matartegundir geta espað upp nikkelexem þó þær innihaldi ekki mikið nikkel. Þessar vörur ætti að reyna að forðast.

Í þessum flokki eru: bjór, vín (sérstaklega rauðvín), síld, makríll, túnfiskur, tómatar, laukur, gulrætur, epli, cítrusávextir ( appelsínu og sítrónusafi).

Ráðlegt er að láta vatn er ætlað er til matseldar eða drykkjar á morgnana renna í stutta stund áður en það er notað vegna þess að vatnið getur tekið í sig nikkel úr lögnum yfir nóttina.