KVENNABLAÐIÐ

Hvolpafull tík fannst örmagna við Vesturlandsveginn á Kjalarnesi

Ester Inga Óskarsdóttir keyrði fram á örmagna tík við Vesturlandsveginn á leið sinni í Kjós í gær. Hún hélt að tíkin væri mögulega slösuð miðað við hegðunina og óskaði eftir ráðleggingum frá Hundasamfélaginu á Facebook rétt eftir kl. 16 í gær þar sem hún hafði árangurslaust reynt að lokka hana inn í bíl, en tíkin vildi ekki láta ná sér og tók engan mat. Eftir nokkra umræðu var henni bent á að hringja í dýraspítalann, hún hringdi í Garðabæinn sem tók það að sér að hringja í hundaeftirlitið á meðan Ester hringdi í lögregluna.

Auglýsing

Dýraspítalinn náði ekki á hundaeftirilitið þar sem búið var að loka og lögreglan sagðist kannski geta sent aðstoð. Loks fékk Ester aðstoð frá vegfaranda til að ná loks tíkinni upp í bíl og fóru með hana í Garðabæinn. Þegar þangað var komið missir tíkin legvatnið, hún drifin í sónar og staðfest að hún væri hvolpafull.

tik1

Kolbrún Arna dýrahjúkrunarfræðingur hjá spítalanum í Garðabæ staðfesti í gær að ekki væru enn komnir hvolpar, en þeir kæmu líklegast um nóttina eða í dag. Tíkin var mjög svöng þegar komið var á spítalann sem er óeðlilegt fyrir tík svona langt gengna. Því er talið að hún hafi ekki verið búin að borða í lengri tíma eða hlaupið langa leið af einhverjum ástæðum. Eigandi hefur ekki enn fundist þó búið sé að hafa samband við flesta bændur í Kjós, á Kjalarnesi og yfir í Mosfellsbæ. Það er mikil sveitalykt af tíkinni og því er talið líklegast að hún sé úr sveit.

Auglýsing

tik2

Ester fann hana um 500 metrum frá sjoppunni á Kjalarnesi hægra megin við veginn. Við biðjum fólk um að deila fréttinni í von um að tíkin eigi áhyggjufullan eiganda sem saknar hennar.

tik3

_____________________________________________________________

Greinin er birt með góðfúslegu leyfi Hundasamfélagsins. Þú getur smellt HÉR til að fara inn á Facebooksíðu Hundasamfélagsins eða HÉR til að fara inn á vefsíðuna þeirra.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!