KVENNABLAÐIÐ

Leitar að konu í stærð 12 sem á engin börn og hefur engin húðflúr

Breskur bæjarfulltrúi setti auglýsingu á stefnumótasíðuna Plenty of Fish og er hún svo smásmuguleg að hún hefur ratað í hina ýmsu miðla víða um heim. Hefur hann reitt konur til reiði vegna þess hve ótrúlega ósvífinn hann er í kröfum sínum. Við segjum bara: Gangi honum vel!

Dan Fleming frá Lancashire setti 442 orða auglýsingu um kröfur sínar á stefnumótasíðuna. Þar segir hann m.a. að húðflúr á konum séu „ógeðsleg” og draumakonan hans verði að geta talað um fleira en bara að versla.

Bæjarfulltrúinn segir að hann hafi búið til þennan „létta” lista eftir að hafa verið svikinn í fortíðinni. Þegar Dan talar um að prófíllinn hans á síðunni sé léttur og skemmtilegur finnst mörgum orð hans vera hreint út sagt móðgandi.

Auglýsing

Viðurkennir Dan að listinn sé kannski dálítið öfgakenndur en allt sé á léttu nótunum. Í viðtali segir hann að hann hafi verið að tala við nokkrar konur sem hann hafi „matchað” við og sumar hafi nú verið eitthvað móðgaðar. Einhverjar hafi spurt hann hvort hann væri að bulla í konum en hann sagði svo alls ekki vera: „Ég hef verið að tala við einhverjar og gantast í þeim. Það er erfitt að hitta konur á netinu. Það á allt að vera á léttu nótunum en það er svo erfitt að lesa í hvað fólk er að segja á netinu frekar en í eigin persónu.”

Það sem stingur hvað mest í lýsingu Dans eru kröfur hans um hæð og þyngd kvennanna sem hugsanlega verða svo „heppnar” að fá að hitta hann. Skrifar hann: „[hún verður að vera] grönn (engar afsakanir dömur, á okkar aldri eigum við að vera á blómaskeiðinu). Ég gæti gert undantekningu ef hún er afar falleg og tilbúin í að leyfa mér að koma henni í form með mínum íþróttamannslega lífsstíl. Stærð fyrir ofan 12 er ekki fyrir mig. Þú getur verið venjuleg á breskan mælikvarða en bara vegna þess að konur eru í ofþyngd, þýðir ekki að það sé í lagi. Það er of mikil græðgi og eftirlátssemi í þessu landi.”

leitar2

Viðurkennir Dan að þegar hann skrifaði lýsinguna gæti hún virkað dálítið„öðruvísi” á konur. Ástæða þess hann skrifaði hana var að honum fannst hann svikinn eftir að hafa hitt eina konu á Starbucks kaffihúsi í ágúst. Hitti hann þar konu sem átti ekkert skylt við prófílmyndirnar sínar að mati Dans: „Hún leit ekkert út eins og á myndunum. Ég mætti hálftíma fyrr og fór á salernið og þar var þessi risastóra kona. Ég hélt hún væri starfsmaður og svo sagði hún við mig: „Ætlar þú á klósettið fyrst. Ég sest bara og bíð eftir þér.” Þegar ég áttaði mig á hver hún væri fór ég mikið hjá mér og ég held hún hafi gert það líka. Það er fullt af stóru fólki þarna úti í dag – bæði karlar og konur. Ég er grannur og íþróttamannslega vaxinn. Ég væri fullkomlega ánægður að ná í granna og fallega konu. Ef hún bætir á sig eftir barnsburð er það allt í lagi. Mér væri alveg sama. Ég held bara að líkami þinn sé endurspeglun á þeirri manneskju sem þú ert og lífstílnum sem þú lifir.”

Hér eru kröfur unga, vel vaxna mannsins:

Ég nota ekki POF (Plenty of Fish) oft. Ég sendi sjaldnast fyrstu skilaboðin og ég er mjög sáttur við að vera einhleypur. Ég skoða marga prófíla þar sem konur lýsa í smáatriðum slæmri dómgreind þegar kemur að því að velja maka. Að skrifa í smáatriðum hvernig mann þær vilja er heiðarlegt. Þannig geta þær fundið einhvern sem þeim kemur saman við og verður þeim trúr. Ég held að það sé ekki of mikið að biðja um. Ég hvet ykkur allar til að velja skynsamlegar í næsta skipti og ef þið treystið ekki eigin dómgreind biðjið aðra um álit. Bróður þinn eða pabba til dæmis.

Þið hafið ábyggilega slæman smekk á karlmönnum því innst inni finnst ykkur gaman að kvarta í vinum ykkar hversu illa kærastinn kemur fram við ykkur, það veitir ykkur ánægju. Ég gæti átt við konu eins og þig en þú myndir ábyggilega verða leið á mér. Svo í staðinn verð ég ekki fyrir þér og reyni frekar að gleðja sál konunnar!

Auglýsing

Ég mun ekki fara í samband til þess eins að vera ekki einhleypur. Ég er að leita að einhverju alvöru. Ég er ekki að flýta mér og ef ég svara þér ekki er ég ekki að leita að þér til að verða móðir barnanna minna, sorrý!

Þetta er það sem ég leita að:

– grönn (engar afsakanir dömur, á okkar aldri ættum við að vera í blóma). Ég gæti gefið mig ef þú ert virkilega falleg og leyfir mér að ). Ég gæti gert undantekningu ef hún er afar falleg og tilbúin í að leyfa mér að koma henni í form með mínum íþróttamannslega lífsstíl. Stærð fyrir ofan 12 er ekki fyrir mig. Þú getur verið venjuleg á breskan mælikvarða en bara vegna þess að konur eru í ofþyngd, þýðir það ekki að það sé í lagi. Það er of mikil græðgi og eftirlátssemi í þessu landi.”

-barnlaus, nema að hún sé ekkja eða fyrrverandi sé sannanlega út úr myndinni (ég þekki marga góða menn sem eingöngu voru staðgenglar þar til pabbinn var allt í einu kominn aftur)

-kaþólsk (ég gæti gert undantekningu en krakkarnir okkar myndu fara í kaþólskan skóla, ekkert annað kemur til greina!) eða allavega að hún viðhéldi sömu gildum – kærleika og fjölskyldan í hávegum höfð

– hafa áhuga á íþróttum

-hafa fleiri áhugamál en að versla og horfa á sjónvarpið

-geta haldið uppi samræðum um annað en raunveruleikasjónvarp, sápur, föt, förðunarvörur eða annað kvenkyns

– hafa engin tattoo, eða ef hún hefur þau mega þau ekki vera sjáanleg (andlit, hendur eða fætur). Í raun eru allar tattúveraðar konur ógeðslegar!

Ég held að ég verði einhleypur lengi ha! Ef þú hefur lesið þetta allt þarftu sennilega á áhugamáli að halda. Viltu koma í tennis kannski?

Viðurkennir Dan að þetta séu afar harðar kröfur og hann sé næstum þrítugur þannig allar þær góðu eru sennilega teknar. „Sem betur fer líkar mér vel við sjálfan mig. Ég hef næstum gefið upp alla von að finna réttu manneskjuna. Ég verð sennilega einn lengi…svo þegar ég verð gamall og einmana, búinn að missa útlitið og er ekki svona grunnhygginn mun ég kannski grípa einhverja konu, þó það sé ekki nema fyrir félagsskapinn.”

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!