KVENNABLAÐIÐ

Markmiðið er að verða feitasta kona í heimi: Myndband

Monica Riley hefur óvenjulegt markmið í lífinu: Að verða feitasta kona í heimi því þannig vill hún verða þekkt sem kyntákn. Hún er nú þegar 317 kíló en stefnir á að verða 444 kíló. Kærastinn hennar er sérlega hjálpsamur við að gefa henni að borða, m.a. í gegnum trekt. Þetta kann að hljóma ótrúlega en þessi 27 ára kona vill í raun verða ófær um að ganga.

Auglýsing

Monica er fyrirsæta á vefsíðunni Super Sized Big Beautiful Woman og segir að hún sé kynferðislega örvuð vegna ofþyngdar sinnar og kærastinn líka: „Þetta er fantasía fyrir okkur bæði, við tölum mikið um það.“

Auglýsing

Hefur parið einnig áætlanir um að eignast barn: „Ég get alið barnið upp frá rúminu. Sumir segja það sjálfselskt af mér en ég held ég yrði góð móðir.“ Monica og Sid kynntust fyrir fjórum mánuðum á stefnumótavefsíðu. Hjálpar hann henni að innbyrða 8000 kaloríur á dag og hefur hún bætt verulega á sig. Myndbandið segir meira en mörg orð…

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!