KVENNABLAÐIÐ

Mun ráðgátan um morðið á JonBenet Ramsey loksins verða upplýst?

Hún var sex ára og keppti í fegurðarsamkeppnum. JonBenet Ramsey var myrt fyrir 20 árum síðan og hefur morðið aldrei verið upplýst. Nýir þættir á borð við þætti Netflix „Making a Murderer” munu nú verða frumsýndir þann 18. september á sjónvarpsstöðinni CBS með nýjum upplýsingum sem búist er við að varpa ljósi á málið á annan hátt.

jo3

CBS, Lifetime, Investigation Discovery og Dr. Phil eru þættir sem allir munu fjalla um morðið.

Stikla þáttanna hefur verið frumsýnd af þessum heimildarþáttum sem verða alls sex klukkustundir að lengd. Fulltrúi frá FBI segir: „Morðið á þessari litlu stúlku hefur ekki verið upplýst. Að mínu mati getum við breytt því núna.”

Auglýsing

Lík JonBenets fannst í kjallara heimilis hennar í Boulder, Coloradoríki árið 1996. Hafði hvarf hennar verið tilkynnt átta klukkutímum áður þegar bréf með lausnargjaldskröfu fannst.

jo


John og Patsy (sem nú er látin) Ramsey fundu lík hennar – með reipi um hálsinn, límband yfir munninn og hendur hennar voru bundnar saman. Teppi var vafið um líkið. Krufning sýndi að dánarorsök var kyrking og brot á hauskúpu.

Auglýsing

Í sex ár voru foreldrar hennar grunaðir ásamt eldri bróður hennar Burke. DNA hreinsaði þau af öllum grun árið 2008.

Foreldrar JonBenet
Foreldrar JonBenet

Þessir nýju heimildarþættir munu sýna fólk sem vann við málið fyrir 20 árum síðan og munu líka sýna nýjar tæknirannsóknir sem ekki voru til staðar fyrir tveimur áratugum. Því er lofað að niðurstöðurnar muni varpa nýju ljósi á málið.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!