KVENNABLAÐIÐ

Er komið að vorhreingerningunni? Nokkur góð ráð!

Það er alltaf gott að gera hreint á heimilinu. Taka til eftir vetrarmánuðina með hækkandi sól (og kannski af því þá sést rykið svo ofsalega vel!) Hvort sem þú hlakkar til eða kvíðir erum við með nokkur góð ráð frá remodelaholic.com sem gæti hjálpað þér á þessum auðveldu eða erfiðu tímum!

hr eldhus

Eldhúsið: Að þrífa frystinn og ísskápinn, þrífa í kringum vaskinn, tæma skápa og raða aftur inn, hreinsa ofninn og hellurnar.

hr stofa

Stofan: Þurrka af öllu, laga snúrur, þvo púða og utan af sófasetti og ryksuga og skúra gólfin.

hr bað

Baðið: Taka allt í gegn – t.d. að henda útrunnum snyrtivörum, þrífa bað/sturtu og vaska ásamt klósettinu. Taka allt úr hillum, endurraða og þrífa hillur.

hr skrifstofa

Skrifstofan: Þrífa öll rafmagnstæki, ryksuga og skúra, taka allt úr hillum og endurraða.

hr svefnherb

Svefnherbergi: Lofta út! Þrífa allt af rúminu, þurrka af bókahillum og skápum, taka ryk af myndarömmum, taka fataskápinn og endurraða, endurnýta og þrífa hillur.

hr allt

Muna svo að fara með allt dót sem á að henda á nytjamarkað! Gömul föt, húsgögn, hvaðeina….endurvinna, endurnýta og gefa aftur til samfélagsins :)

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!