KVENNABLAÐIÐ

GLÆSILEGT: Kim Kardashian ÓFÖRÐUÐ á forsíðu spænska VOGUE

Kim Kardashian prýðir nýjustu forsíðu spænska Vogue án farða og er glæsileg ásýndar. Um sögulega forsíðu er að ræða, þar sem Kim er vart þekkt fyrir annað en gífurlegan farða og ógurlegar tilfærslur en þetta mun í alfyrsta sinn sem raunveruleikastjarnan prýðir forsíðu óförðuð og hún ber náttúrulegt útlitið glæsilega.

 

Þetta mun þó ekki vera í fyrsta sinn sem Kim prýðir forsíðu Vogue, en þó mun nær óþekkt að nokkur fyrirsæta landi forsíðu tískurisans án þess að farði komi þar við sögu og hvað þá jafn náttúrulegt útlit og kyntákninu fer glæsilega.

kim-kardashian-no-makeup-1-1437143832

Í raun má vona að með þessari sögulegu forsíðu hafi Kim rutt brautina fyrir þær stúlkur sem þora vart úr húsi án farða og að náttúrulegt útlit fari loks að taka við af stífri andlitsförðun sem gengur út á að þekja andlitið svo að ekki má annað sjá en að um tvær gjörólíkar konur sé að ræða; fyrir og eftir förðun.

KimKardashian@Twitter

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!