KVENNABLAÐIÐ

B Ö N N U Ð: Naktar geirvörtur Chrissy Teigen gera allt vitlaust á Instagram

Ofurfyrirsætan Chrissy Teigen hefur rekið upp herör gegn vægðarlausri ritskoðun Instagram sem virðist að mestu snúast um vanþókun á konubrjóstum og þá sérstaklega nöktum geirvörtum. Chrissy, sem birtist í myndaþætti á vegum W Magagzine sem ber heitið Privacy Settings spread deildi þessu skoti úr þættinum á Instagram og brást öryggisvarðasveit samskiptamiðilsins harkalega við, fjarlægði myndina undir eins og sendi Chrissy formlega viðvörun.

Þessa mynd af Chrissy bannaði Instagram með öllu:

1321533779571128872

Chrissy brást samstundis við á Twitter, gaf út yfirlýsingu þess efnis að þó geirvartan væri farin í tímabundnar felur, hefði hún síður en svo í hyggju að hylja brjóst sín með öllu. Aðdáendur hennar gætu því andað rólega, þar sem geirvartan hyggði á endurkomu innan tíðar.

screenshot-jezebel.com 2015-07-08 13-43-30

Í framhaldinu birti svo Chrissy aðra ljósmynd, að þessu sinni tók hún myndina sjálf og deildi glaðbeitt á Instagram. Takið sérstaklega eftir því hversu skemmtilega fyrirsætan fer að því að hylja geirvörtuna á myndinni:

1321533779382290728
Svo virðist því sem hið almáttuga brjóstastríð sé í fullum blóma í henni gömlu Hollywood og þess fyllilega vert að fylgja Chrissy eftir á samskiptamiðlinum – allt í nafni tjáningarfrelsis á Instagram.

chrissyteigen@instagram

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!