KVENNABLAÐIÐ

H Ú S R Á Ð: Fjórar FRÁBÆRAR leiðir til að nýta MÁLBANDIÐ enn betur!

Málband. Í alvöru talað. ef þú veist það ekki nú þegar, þá býður málbandið þitt upp á fleiri möguleika en þig jafnvel órar fyrir. Allt þetta er svo stórkostlega sniðugt, að hús- og heimilisverkin geta orðið mun einfaldari.

Hvað áttu til dæmis að gera ef þú þarft að mæla frá miðjum vegg og enginn er til að halda málbandinu? Hvernig fer ef verið er að mæla gluggakistur og af hverju skröltir í málbandinu þegar þú dregur það út?

Kannski handlagnir iðnaðarmenn og ofurhetjan á heimilinu kunni öll brögðin hér í myndbandinu utanbókar, en við hin sem ekki erum vön að handleika nagla og hamar, hvað þá málband – getum vel nýtt okkur þessar skemmtilegu staðreyndir.

Stórsniðugt og þrælskemmtilegt, ekki satt!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!