KVENNABLAÐIÐ

Vinsælasti drykkurinn í Hollywood

Bulletproof Coffee eða skothelt kaffi er nýjasta æðið meðal fræga fólksins í Ameríku. Stjörnur eins og Shailene Woodley, Ed Sheeran, leikmenn LA Lakers og fleiri drekka þetta daglega og eru miklir talsmenn kaffidrykkjarins.

En hvað er skothelt kaffi? Jú felst í því að setja fitu út í kaffið á morgnana, smjör og kókosolíu. Tilgangurinn? Gefur þér orkuskot sem endist í allt að 6 klukkustundir og hjálpar þér að brenna fitu. Fitan brennir fitu og meira að segja kviðfitu og annari fitu af líkamanum sem annars er erfitt að losna við.

IMG_0517-613x408

Shailene Woodley heimsótti nýlega Jimmi Fallon og hann færði henni skothelt kaffi enda hennar uppáhalds drykkur. Hún setur kaffi, smjör og kókosolíu í blandara og drekkur.

Uppskrift:

180-200 ml svart kaffi
2 teskeiðar lífræn kókosolía
1 teskeið smjör
örlítið af vanillu steviu

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!